|
Mamma og pabbi koma �?¬ heims�?²kn til m�?¬n
Fyrir 1728 dögum
|
19.07.2007 00:12:44 / hrundpund
hæ hæ gott fólk ég vildi bara segja ég er komin heim til litla
kalda Íslands.
Annars mun þetta ábyggilega vera síðasta bloggið sem ég mun
skrifa því að ég barasta nenni ekki að vera með þessa bloggsíðu
lengur, það skoðar þetta enginn 
En jamm ég bara læt fólk vita ef ég ætla mér einhvertíman að
koma með aðra síðu 
»
29.06.2007 17:23:03 / hrundpund
Góðan
dag gott fólk.Nú er liðin langur
tími síðan ég bloggaði síðast og margt búið að gerast. En
þetta verður næst síðasta bloggið sem ég mun blogga hér á
Ítalíu.Ég er búin að taka
próf í skólanum heima og gekk bara ágætlega held ég, fékk sjö
í ensku og 4 í dönsku en sögu einkunnin er ekki enþá
komin.En jamm fór ég til
Rómar með Daniela og Gian Paolo 26 og 27 maí og var það bara
allveg ágætt, fékk samt ekki að sjá þá hluti sem ég vildi
virkilega mikið fá að sjá eins og sextándu kapelluna og
Vadikanið en ég sé það bara seinna. Annars sá ég fullt af
öðrum frægum hlutum sem ég bara man ekki nafnið á. en ég fór
að sjá gosbrunninn sem maður á að henda pening í til að maður
komi aftur til rómar. D og G.P. sögðu að ég ætti frekar að
helda pening í gosbrunninn í Oristano því að ég sagði alltaf,
ef þau spurðu mig hvort að mér líkaði það sem ég sá, mér
líkar betur við Oristano
En já svo komum við
heim, ég fór í skólann og 5 dögum seinna fékk ég mömmu og
pabba í heimsókn.Sagan af því þegar
mamma og pabbi komu í heimsókn.
Þau komu um svona 8-9 leitið að kvöldi til eftir næstum því 12
tíma ferðalag eftir að hafa knúsað þau allveg í tætlur fórum við
til Oristano. Á leiðinni stoppuðum við á einum veitingastað og
ætluðum að fara inn og fá okkur eitthvað að drekka en klukkan var
u.þ.b. 11 að kvöldi til og á veitingastaðnum stóð 24 ORE eða 24
tímar en veitingarstaðurinn var
lokaður!!!En jamm svo komum við
loksins til Oristano og stoppuðum stutt heima til að heilsa Daniela
en svo kom líka Crii og kíkti á þau
Daginn eftir fengu þau að
sofa aðeins út en um 12 leitið fóru ég, Daniela, Gian Paolo, mamma
og pabbi öll heim til Cristiano og fjölskyldu að borða hádegismat
eða réttara sagt hádegisveislu því að við fengum sko listauka,
forrétt, aðalrétt, eftirrétt, kaffi, líkjör, meiri eftirrétt og
meira kaffi!!! Svo þið getið rétt ímyndað ykkur hversu södd við
vorum orðin bara eftir forréttinn en svona eru ítalir
Yfir matarborðinu var mikið
talað og mikið þýtt. Ég fékk varla að tala fyrir sjálfa mig því að
ég var alltaf að þýða fyrir einhvern annann, annaðhvort mamma og
pabbi voru að segja eitthvað sem þarfnaðist þýðingar eða Daniela,
Gian Paolo, Cristiano, Fernanda eða Antonio(foreldrar Cristiano)
voru að segja eitthvað sem þarfnaðist
þýðingar.En þau skildu hvort annað að
lokum, með minni hjálp
Annars sögðu mamma og pabbi að foreldrar Cristiano væru MJÖG!!!
Vingarnleg, en það þekkist ekki á Íslandi að bjóða fólki sem maður
er búinn að þekkja í 5 tíma að fá lánaðann bílinn sinn, en það
gerðu foreldrar
Cristiano.
Svo eftir hádegisversluna fórum við og skoðuðum
Oristano og fórum á kaffihús með
Crii. Daginn eftir vorum við bara
kyrr í Oristano, borðuðum hádegismat heima og tókum því bara rólega
því að um kvöldið voru tónleikar hjá mér því að ég er búin að vera
læra kórsöng í ár.Tónleikarnir heppnuðust bara
nokkuð vel og líkuðu foreldrum mínum bara mjög vel. Eftir
tónleikana fórum við út að borða á pizza veitingastað með Daniela,
Gian Paolo og Crii. Daginn eftir fórum við með
Daniela og Gian Paolo í húsið okkar á ströndinni. Mömmu og pabba
fannst það æðislegt og spurðu mig hvort það væri ekki hægt að kaupa
hús þarna, en ég er allveg til í það
Svo eftir hádegismat fórum
við til Arbus þar sem mamma varð ástfaning því að í Arbus er fullt
af pínu litlum götum þar sem er varla hægt að keyra um á bíl en það
fynnst mömmu allgjört
æði.
Svo fórum við á hnífa safn sem sýndi hnífa gerð sardiniu búa langt
aftur í aldri, en það var mjög áhugavert að skoða. Svo fórum við
til ömmu og afa í kaffi, stoppuðum þar í smá tíma og fórum svo heim
og borðuðum. Á þriðjudeginum fórum við
til Cagliari og fór ég með gamla settið á flest alla staðina sem
var áhugavert að skoða
Svo fórum við heim og elduðum saltfisk fyrir Daniela, Gian Paolo og
Crii og þeim fannst hann bara nokkuð góður
Á miðvikudeginum fór ég í
skólann og um 12 leitið komu mamma og pabbi í skólan og fékk ég að
fara með þeim í smá skoðannakönnun um skólann. Svo fórum við inn í
bekkinn minn og töluðum smá við bekkjarfélaga mína, verst að þau
voru svo feimin að þau þorðu varla að segja neitt
Svo fórum við heim í
hádegismat og fórum svo að
versla. Á fimmtudeginum gerðum við
ekkert mikið, ég fór í skólann fór svo heim í hádegismat og fór svo
að versla með mömmu og pabba. Um kvöldið komu aðstoðarfólk afs heim
eftir kvöldmat að borða smá ís með okkur þar gátu mamma og pabbi
loksins talað óheft ensku því að loksins var einhver sem talaði
almennilega ensku. Á föstudeginum fór ég í
skólann og var það líka síðasti dagurinn í skólanum ég var næstum
því farin að gráta því ég vildi ekki kveðja krakkana í skólanum.
Svo fór ég heim borðaði hádegismat og fór svo með Daniela, Gian
Paolo, mömmu og pabba að skoða Nuraghi en það eru fornleifar af
þorpum og heilugum brunni sem voru til um 1000 fyrir
krist.Svo fór ég á síðustu
kóræfingu ársins og fór svo heim að
borða. Á laugardeginum fór ég um
morguninn með mömmu, pabbi og Crii út á strönd sem heitir San
Giovanni, en hún er geðveikslega falleg. Við borðuðum á ströndinni
og höfðum það næs Svo þegar við sáum að pabbi
var að brenna frekar fallega ákváðum við að
fara.En áður en við fórum heim
fórum við á aðra strönd sem heitir Torre grande en hún er samt ekki
nærrum því eins falleg og San Giovanni. Þar fengum við okkur ís og
löbbuðum svo smá vegis um og hittum nokkra vini mína og Criis.
Eftir það fylgdum við mömmu og pabba heim en ég og Crii fórum aftur
á ströndina. Svo fór ég heim og borðaði með mömmu, pabba, Daniela,
Gian Paolo, mömmu Gian Paolo og systur
hans. Á sunnudeginum vöknuðum við
eldsnemma og fylgdum mömmu og pabba á flugvöllin og fórum svo heim
og sváfum. En mamma og pabbi héldu ferðalaginu
áfram. Ég verð því miður að klára
að skrifa seinna því að ég hef bara ekki tíma núna, þarf nebblega
að fara að taka mig til fyrir heimkomu, ef heimkomu á að kalla
Annars eru þetta 1.112 orð
pabbi minnKossar
Alma.
»
27.05.2007 14:25:17 / hrundpund
Síðan lá í dái í gær, þannig að
Alma sendi mér þetta í gegnum MSN í gær og bað mig um
að setja þetta hér inn þegar síðan vaknaði til lífsins á
ný. Kv.Elli
Góðan dag eða Buon
Giorno eins of maður segir það á ítölsku
Síðustu dag er lítið búið að gerast en ég held samt
að það sé betra að ég skrifi eitthvað því ég vill ekki verða
auralaus hérna úti En pabbi sagði víst fyrir síðasta blogg að ef
að ég bloggaði ekki þá fengi ég ekki meiri pening 
Ekki að ég þurfi pening í augnablikinu en það er alltaf gott að
eiga smá pening til vonar og vara ef eitthvað skildi koma upp á
Allavegana síðust 3 vikur hef ég farið í skólann á
hjóli, eitthvað sem ég hef ekki gert í 3 ár, og hefur það gengið
mest megnis vel, fyrir utan það að í gær var ég næstum því búin að
hjóla á vegg og um daginn var ég næstum því búin að hjóla fyrir bíl
En ég er samt á lífi bara með 2 gífurlega stóra marbletti á
hægra lærinu En 1.maí er allveg gífurlega stór
hátíð hér á Ítalíu og fór ég til höfuðborgar Sardiniu, Cagliari, á
gífurlega stórann útimarkað. Og það var æðislegt, ég keypti mér
einn bol merktum Red Hot Chilipeppers og stafi sem lýsa í myrki en
þeir stafa setninguna: Crii Mi Manchi sem þýðir
Crii saknar þín Annars fór ég líka í draugahús þarna en það var
ekkert voðalega spúký, bara fyndið, nema í eindanum því að þar var
búið að setja pínu lítil göt í gólfið hér og þar og þetta var
náttúrulega úti og ég vitanlega í þvílíku sumarskapi bara í
pilsi.... en já þið getið ímyndað ykkur hvað gerðist næst ég hló
eins og brjálæðingur eftir þetta og varð að gjöra svo vel að
setjast niður til að ná andanum ég hló svo mikið. Crii hló líka en
ekki eins mikið og ég sérstaklega eftir að hann sá að flest allir á
svæðinu voru að horfa á mig. En á endanum hætti ég að hlægja og við
fórum heim.En annars er ég líka búin að
vera að læra eins og brjálæðingur síðustu vikur því að það er
víst prófavika heima á króknum í skólanum og ég er að taka
utanskóla áfanga í Sögu, Ensku og Dönsku þó að ég sjái
reyndar smá eftir því að hafa tekið dönskuna því að ég skil
barasta ekki baun í bala En á þriðjudaginn fór ég í ensku
prófið og í dag fer ég í dönsku prófið og á morgun fer ég í
sögu prófið svo að alla þessa viku hef ég annað hvort verið
að læra dönsku eða sögu bara til að rifja upp það sem ég er
búin að vera að gera síðustu 6 mánuði.
En jæja ég get ekki haft þetta lengra í bili ég verð að fara að
læra en ég reyni að skrifa meira næst 
því miður pabbi bara 361 stafur
Ciao
ciao
Alma
»
30.04.2007 19:29:07 / hrundpund
HA HA PABBI READ IT AND
WEEP!!!!
Jæja gott fólk þá kemur það....
annað blogg 
Þið verðið bara að afsaka bloggleisið mitt en ég er líka búin að
vera að læra soldið fyrir skólann þarna heima en....
Pabbi er víst búinn að vera að tuða eitthvað um það að u.þ.b. 79
manns fóru inn á síðuna mína um daginn en þessir 79 manns hafa nú
ekki kommentað eða skrifað í gestabókina.
En allavegana Feneyjar voru ágætar var hálf lasin mest allann
tímann með hálsbólgu, kvef og hita og svo ringdi líka mest allan
tímann fékk kanski 15 mín af sól EINN dag!!
Þannig að þið getið ímyndað ykkur hvernig þetta var. En jamm ég
verð víst að gefa betir skýslu um hvað ég gerð þegar ég var í
Fenejum.
Fyrsta daginn var ég lasin heima með allri fjölskyldunni og hún var
næstum öll lasin líka 
Daginn eftir var ég enþá lasin en varð að fara með AFS til Feneyja,
en ég bjó í bæ fyrir utan Feneyjar sem heitir Mestre, allan þann
dag var ég virkilega lasin og var að bilast því það var allt krökt
af dúfum og ég HATA DÚFUR!!!!
Þriðja daginn fórum við um morguninn á einhverja friðarráðstefnu og
kynntum okkur þar á Ítölsku og fórum svo heim til einhvers stráks,
fengum okkur smá pásu og fórum svo (þeir sem áttu pening) að
versla.
Fjórða daginn fórum við Padóva og sáum þar Sant Antonio kyrkjuna en
hún var gullfalleg fyrir utan það að inn í henni er lík Sant
Antonio, og það er hægt að skoða tunguna og raddböndin hans því að
það er búið að skera þau úr fyrir ég veit ekki hvað löngu en það
var vikrilega ógeðslegt!!!
Fimmta daginn fórum við til Veróna og var það æðislegt nema það
rigndi STANSLAUST allan daginn og ég var ekki með regnhlíf bara í
leðurjakkanum mínum þannig að ég blotnaði nú ekki mikið en ég var
eins og blautur hundur um hárið.
Svo gerðist ekkert mikið meira í Feneyjum nema ég skoðaði
einhverjar eyjar rétt hjá og á einni eyjunni var glerverksmiðja og
fengum við að sjá glerdúfu gerða
Eftir þetta var bara farið heim og gaman enda var ég farin að verða
soldið óþolinmóð á að fara heim því þar beið kærastinn(fyrir ykkur
sem ekki vitið þá á ég núna kærasta hérna og hann er allgjört æði
eða það fynnst mér allavegana )
En heimleiðin var líka útaf fryrir sig smá ævintýriÉg flaug heim
1.Apríl og gekk flugið bara vel, svo þegar ég og Rikke(stelpa frá
Noregi) vorum lentar var að leita af rútunni sem færi frá
flugvellinum niður í miðbæ til að ná lestinni
heim.
En við fundum hvergi rútuna, svo eftir smá spjall við
afgreiðslufólkið fengum við að vita að rútan væri væntanleg. Svo
þegar rútan loksins kom gátum við hvergi keypt miðana, svo að við
fórum miðalausar í rútuna en bílstjórinn sagði okkur bara að kaupa
miðana í miðbænum.
En þegar við komum í miðbæinn beið okkur þar óvæntur glaðiningur
eða meira óvænt fyrir mig meiri glaðningur fyrir Rikke, en það beið
kærastinn hennar sem var að koma til hennar í heimsókn í viku

Svo keyptum við miðana og miðana til að taka lestina heim en hún
fór ekki fyrr en um 4 leitið og við vorum búnar að vera á ferðalagi
frá klukkan 11 um morgunin, svo að við fengum okkur smá pásu,
stoppuðum á Mac.Magapínu og fengum okkur að borða. Biðum svo í
tæpan 1 og hálfan tíma eftir að lestin kæmi. Svo þegar hún loksins
kom gekk allt vel, fórum í lestina og slöppuðum aðeins af
Kenndum Tormund smá ítölsku en svo þegar við vorum búin að vera í
lestinni í svona hálftíma stoppaði hún og einhver gaur kom og sagði
bara ALLIR ÚT!!! Rútan bíður. Svo að við þurftum að fara úr
lestinni í rútuna, vera í rútunni í einhvern smá tíma og taka svo
aftur aðra lest þangað til að við loksins komum til
Oristano. Um páskana var ég í Arbus og
verð ég bara að segja að þessi fjölskylda sem ég er hjá er soldið
klikkuð eða að þau halda að ég borði ekkert því að amma mín og afi,
frænka mín og maðurinn hennar og Daniela og Gian Paolo gáfu mér
eitt páskaegg hvert og svo fékk ég náttúrulega eitt frá mömmu og
pabba heima á íslandi þannig að saman lagt fékk ég 4 páskaegg um
páskana, 2 úr mjólkur súkkulaði og 2 úr dökku súkkulaði(NAMMI
NAMM!!!!!!!!!!)Næstu daga gerði ég varla neitt
nema að tala um hvað Sardinia er miklu fallegri en Feneyjar(að mínu
mati ) og að ég væri allveg til í að búa hér þegar ég væri búin
með skólann minn á Íslandi.
Flestum fannst það frekar skrítið að mér fynndist Sardinia fallegri
heldur en Feneyjar en voru ánægðir þegar ég sagði að ég væri til í
að búa hér En núna er líka
að fara koma sá tími þar sem er hægt að fara á ströndina og fara í
sjóinn án þess að krókna úr kulda. Þannig að um daginn fór ég og
Cristiano(kærastinn minn og ég skrifa allt sem ég veit um hann á
eftir ég lofa því )með nokkrum vinum hans á ströndina 21 Apríl
og það var GEGGJAÐ!!!! Svo 25 Apríl fórum við aftur og vorum þá
ALLAN daginn, við fórum klukkan 10 um morguninn og fórum af
ströndinni klukkan 5 seinni partinn Daniela var svo hrædd um að
ég myndi brenna þannig að hún keypti fyrir mig sólvörn númer 60!!!
Pínu lítið of sterk fyrir mig þannig að ég fékk nærrum því engann
lit og brann næstum því ekkert, nema það að í seinna skiptið þegar
ég bara á mig gleymdi ég að bera á bringuna á mér svo að ég brann
soldið þar, en ekkert alvarlega 
Svo líka um daginn fékk ég loksins eftir langar samningaviðræður
við foreldra mína hér að vera lengur út en til hálf eitt þennann
dag fékk ég að vera úti til hálf 2 svo að ég var bara nokkuð
ánægð einn klukkutími í viðbót bara æðislegt, skárra en að koma
heim hálf eitt Svo bara ekki í gær
heldur hinn þegar við vorum í Arbus kom hópur að krökkum til
Danielu og buðu henni kettling Þegar Daniela sá hann sagði hún
strax já og þar með bættist annar fjölskyldu meðlimur í okkar litlu
fjölskyldu Hún heitir Rósa og er pínu lítil og allgjört krútt
En jæja gott
fólk ég var víst búin að lofa að skrifa smá um þennann kærasta minn

Byrjum á að lýsa honum
Hann er aðeins hærri en ég með dökkt næstum svart hár niður á axlir
og smá liðað, brún augu og svört gleraugu(ekki sólgleraugu bara
umgjörðin er svört). Hann er með skegg svipað og skeggið hans Eika
bara aðeins minna. Hann er smá massaður vegna þess að hann æfir
sund.Hann er mjög yndæll og góður, smá
stríðinn en mjög sætur í sér(t.d. downlodaði hann fyrir mig nýja
diskinum með Type O’ Negative þótt hann hefði aldrei hlustað á þá,
hann vildi bara gefa mér eitthvað
)Hann er 19 ára gamall fæddur 1988. 3.
Apríl. Klukkan hvað veit ég ekki
Fjölskyldan hans er líka mjög
yndæl, hann á tvær systur, Camilla og Martina. Mamma hans heitir
Fernanda og pabbi hans heitir Antonio
Um daginn var mér boðið í afmælis veislu hjá Camillu og þegar ég
kom var pabbi hans ekkert nema vingjarnlegheitin við mig, vildi
bókstaflega gera allt fyrir mig það lá nærrum því við að ég gæti
beðið hann um að fara á klósettið fyrir mig En allavegaa ég var
þarna heima hjá honum í krakka afmæli en systir hans var 8 ára og
pabbi hans fór allt í einu að bjóða mér Kampavín Talandi um
skrítinn kall en allt í lagi ég fékk þarna hálft glas af kampavíni
borðaði smá köku og svo fórum við
 Allavegana ég vona að þetta sé nógu langt blogg
fyrir þig annars eru þetta 1.392 orð svo að ég held bara að
þú skuldir mér smá pening
 Annars fer ég á morgun til höfuðborgar Sardignu til
að fara á smá útimarkað sem er víst eitthvað gífurlega stór
 Blogga meira eftir tvær vikur eða meira
 Ciao
Alma
»
20.03.2007 17:29:05 / hrundpund
Jæja gott fólk
nú er ég búin að upplifa Carnival og fara til Barchelóna

Ég hef því miður ekki haft tíma til að blogga vegna þess að ég er
búin að vera í þessu Carnivali og svo þurft að læra, svo farið til
Barchelóna og svo þurft að læra og núna á laugardaginn er ég að
fara til Feneyja í 8 daga Geggjað ekki satt? Eina viku heima,
eina viku í burtu, eina viku heima, eina viku í burtu 
Þegar ég skrifaði síðast sagði ég að ég væri að fara að taka þátt í
Carnivali. Og það var GEGGJAÐ!!!! Ég held ég hafi aldrei skemmt mér
svona vel ég var með öllum hinum krökkunum í AFS og við vorum
með eigin vagn og við vorum öll geimverur frá Mars. Við stelpurnar
vorum í gulllituðu pilsi með gulllituð armbönd og öklabönd og
ekkert lítil þau voru HUMANGUS!!!! Svo vorum við með svona
geimveruloftnet og loftnetið mitt var bleikt áður en við fórum
af stað þurftum við nátturulega að undirbúa okkur og fara í fötin
og mála okkur og svona, svo að ég ákvað að vera soldið freaky, eins
og ég geri stundum, og málaði mig í Silvíu Nótt stíl með stóra
fjólublá stjörnu á hægra auganu og graent hjarta á því vinstra, svo
til að setja punktinn yfir I-ið þá túberaði ég á mér ALLT hárið!
Þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig ég leit út en ég set kannski
myndir inn seinna.Á Barchelóna var
magt og mikið að sjá og skoða og fór ég á heil 4 eða 5 söfn og
skoðaði 3 kirkjur svona er að vera í listaskóla, ef maður fer í
ferðalag þá er maður bara að skoða listrænuhliðarnar á hlutunum
sem er ÆÐI!!!!!
Annars verð ég að fá að skrifa meira seinna því að Danskan bíður
mín og ótrúlegt en satt en núna þarf ég að læra, ekkert mikið fyrir
skólann hérna en slatta fyrir skólan heima á klakanum 
Ég reyni að skrifa þegar ég kem til baka frá Feneyjum 
Knús og Kossar
Alma
»
13.02.2007 16:12:04 / hrundpund
Jæja gott fólk, tvær vikur
liðnar og tímabært að ég fari að blogga.Í Janúar
gerðist voðalega lítið, en núna í byrjun Febrúar er búið að
gerast slatti!Rikke, Norsk stelpa sem er með mér
í Ítölskutímum, skipti um fjölskyldu bara allt í einu, seinna
fengum við að vita að hún skipti afþví að systir hennar var
víst þvílík tík að það hálfa væri nóg.
Ítölskutímarnir hættu því að núna eigum við að vera
búin að ná grunninum í Ítölskunni. Kate ein af
fáum vinkonum mínum innan afs fór heim núna 10 feb. Skólinn
hennar vildi bara leyfa henni að vera í 6 mánuði
Svo að Fimmtudaginn 8 fór ég, Maria, Rikke,
Jia og flest allir í hópnum frá Terralba fórum til Cagliari
til að kveðja hana, sumir gáfu henni gjafir og meðal annars
ég, ég gaf henni möndlupoka með íslenskum mödlum hún sagði
mér að mín gjöf var sú besta því að henni fynnast möndlur svo
góðar. Síðasta
laugardag fór ég í Party hjá einum af aðstoðarmönnum hjá AFS
Það var geggjað gaman og afþví að þetta var AFS party þá
mátti ég koma heim þegar ég vildi svo að ég kom heim
klukkan 4 
Þegar ég var búin að vera í partýinu í svona u.þ.b. 5 tíma fór ég
með aðstoðamanninum mínu í einn klúbb sem er fyrir rockhljómsveitir
það var geggjað, svo fór ég í eitthvað diskótek og þar hitti ég
Gimmy og Floriana og Julia og fleiri það var geggjað gaman og
var þetta næstum því eins og böllin heima bara það vantaði
ofurdrykkjuna, slagsmálin og grátandi stelpurnar, en allt annað var
þarna Svo á sunnudagin fór ég til Cagliari aftur með
öllum í AFS hópnum í Oristano til að sjá eitthvað Carnival í
Cagliari það var GEÐVEIKT GAMAN en það allra skemmtilegasta var
það að Rikke var svo drulluhrædd við ákveðinn hóp af persónum í
þessu Carnivali!! Stundum lá við að hún færi að gráta af hræðslu
ég læt kannski myndi við tækifæri Annars núna á
fimmtudaginn fer ég til Terralba í AFS búðir í
eina viku
»
27.01.2007 16:31:19 / hrundpund
»
13.01.2007 14:43:24 / hrundpund
Jæja nú eru jólin og áramótin
búin og tímabært að koma með blogg.
Þann 22 des fór ég í skólann eins og
vanalega, lítið lært því að þetta var síðasti skóladagur fyrir jól.
Eins og flestir vita þá er Ítalía ekki eitt af ríkustu löndum í
heimi og ég bý í fátækari hluta Ítalíu, í dag gerðist einhver
allveg desprat í peninga og rændi banka sem er næstum því við
hliðina á skólanum mínum, svo vitanlega fór allur bekkurinn út í
glugga til að reyna að sjá eitthvað. Ensku kennarinn var ekkert of
sáttur við þetta og vildi að við færum að læra eitthvað en ég sagði
henni að bankarán þekktist ekki á Íslandi og þetta væri allveg nýr
hlutur fyrir mig svo að hún leyfði okkur að horfa áfram þetta
var frekar spennandi fullt af löggubílum og ein til tvær þyrlur
alltaf að hringsóla yfir skólanum í leit af þeim sem framdi ránið
Ale sagðist hafa séð hann en við vorum ekki allveg viss hvort að
við áttum að trúa henni því að það sá hann enginn annar og hún
sagði þetta líka á svo eitthvað ótrúverðugan
hátt.
Á Þorláksmessu átti Gimmy
afmæli og var ég sú fyrsta til að óska honum til hamingju
(enda sendi ég honum sms klukkan tvær secondur yfir tólf) en
þennann dag vaknaði ég frekar seint því það var frí, en þegar
ég vaknaði fór ég út til að kaupa mér inneign svo að ég gæti
nú hringt heim klukkan sex á aðfangadag. Þegar ég fór út í bæ
hitti ég Mariu og Rikke og fleiri aðrar AFS stelpur. Þær voru
að fara í hádegismat á kínversku veitingahúsi. Svo ég slapp
við blessuðu skötulyktina og fékk yndæla kínverska lykt í
staðinn 
Jólin voru mjög skrítin engin
fín föt og ekkert verið að stressa sig yfir að fara í sturtu
fyrir matinn, þú bara mætir í þeim fötum sem þú ert búin að
vera í yfir daginn, í mínu tilfelli voru það hvítur kúbubolur
frá mömmu og pabba og gallabuxur, svo er borðað soldið fínni
mat en vanalega samt fannst mér þetta vera voða líkt matnum
sem við borðum dagsdaglega, fyrir utan kiðlingshausana sem
mér datt ekki í hug að smakka, ég smakkaði þó daginn áður
kiðlingakjöt og var það allveg ágætt

Svo eftir matinn talaði ég við
íslensku familyuna aðeins en ég var svo sniðug að vera með
hálfbatteríslausan síma með mér til Arbus og gleyma
hleðslutækinu heima svo ég talaði við þau úr símanum
hennar Daniela.
Chiara og Marta voru þurftu að
vera allveg ógurlega lagann tíma inn í eldhúsi því að þær
voru búnar að vera svo óþekkar yfir matartímann, ég var búin
að segja þeim áður að ég ætlaði að hringja til Íslands til að
tala við foreldra mína þar og biðja þau um að segja
jólasveininum að sleppa því að koma til okkar því þær voru
búnar að vera svo óþekkar. Þannig að á meðan ég var að tala
við mömmu og pabba og Jófó þá horfðu þær á mig með svona
“Plís ekki gera það” glampa í augunum og voru eitthvað voða
niðurdregnar æjji þær eru dúllur en svo loksins fór
jólasveinninn fram hjá og fengu þá allir að fara inn í
,,Fínni’’ stofuna og þar biðu gjafirnar. Ólíkt því sem er
gert heima á Íslandi, einn pakki opnaður í einu, þá fékk ég
alla mína pakka í einu og mátti bara strax opna ég var
bara nokkuð sátt en það vantaði alla stemninguna við þetta.
En ég fékk annars í jólagjöf, 5 eyrnalokka, tvö armbönd, tvö
hálsmen, einn hring, allar Harry Potter dvd myndirnar ,
náttkjól, Íslenskt konfekt og 50 evrur(5000 kall) ég verð
bara segja ég er nokkuð ánægð en eftir þetta var bara
farið að sofa en ég fór og horfði á fyrstu Harry Potter
mydina 
Næsta merkilega sem gerðist
þessi jól var afmælið mitt 
28 des fórum við til baka til
Orisano svo að ég gæti farið að gera tilbúna veisluna mína.
Um kvöldið fórum við út að borða á mjög góðum Pizza
veitingastað bara verst að þjónustan var allgjört hörmung,
við biðum í einn og hálfann tíma eftir Pizzunum. Á miðnætti
opnaði ég síðan þá pakka sem ég hafði fengið frá mömmu og
pabba(heima), Betty og frá mömmu og pabba(hérna) frá mömmu og
pabba(heima) fékk ég fimm DVD myndir og lítinn plasma
sjónvarpsskjá sem ég fæ þegar ég kem heim. Frá Betty fékk ég
bók á íslensku sem ég kláraði á þrem dögum og frá mömmu og
pabba hér fékk ég gallastígvélaskó svo fór ég bara að sofa

Á afmælisdaginn minn bakaði ég
köku og gerði klárt fyrir afmælið sjálft. Fannst það nokkuð
töff að fara á 17 ára afmælinu mínu út í búð til að kaupa
kampavín og var ekki einu sinni spurð um skilríki. Svo var
veislan sjálf allgjört æði fyrir mig. Þó að það komu bara 4
en ég skemmti mér samt vel við boðruðum íslenska
skúffuköku og fullt af nammi og mat og fórum svo út. Hittum
við þar nokkra vini og svo var bara farið heim.

»
16.12.2006 17:17:41 / hrundpund
Jæja jæja gott fólk ný
vika búin og styttist í jólin

Síðasta laugardag fékk
ég þau réttindi að fá að sofa út 
Svo á mánudaginn þegar
ég kom aftur í skólann fékk ég að vita það að það VAR skóli á
laugardaginn smá miskilningur þar en allt í lagi

Ég var hinsvegar
hræðilega MÓÐGUÐ á mánudaginn. Ég var í fyrsta
tímanum(ítölsku) þegar kennarinn spurði mig algjörlega upp úr
þurru, Alma hefuru fitnað???? Ég varð næstum því brjáluð,
hvað kemur miðaldra karlmanni, sköllóttum og ábyggilega gay
við hvort að ég hafi fitnað eða ekki????
Á þriðjudaginn ætlaði
ég að fara í skólan en þegar ég kom þangað voru allir
nemendurnir fyrir utan skólann, ég fékk að vita það að
skólastjórnendur neituðu að láta hitann á í skólanum, það var
frekar kalt þennan dag, svo að krakkarnir ákváðu að mótmæla
með því að skrópa, svo að ég og Maria(skiptinemi frá Noregi)
fórum heim til mín og horfðum á sjónvarpið og átum nammi

Á miðvikudaginn var
hundleiðinlegur skóladagur, heimspeki, eðlisfræði, efnafræði
og stærfræði.
Á fimmtudaginn var
keramic tími og kláraði ég annan diskinn minn þar
obboðslega gaman.
Á föstudaginn fór ég
ekki í skólann því að ég var eitthvað lasin og í dag fór
ég úr skólanum klukkutíma fyrr því að það var enginn
listasögutími. Svo fór ég bara heim og borðaði hádegismat og
tók til og skrifaði blogg.
»
09.12.2006 15:01:26 / hrundpund
Hæ hæ Allt gott að frétta hér. Lítið búið að
gerast í vikunni.
Á mánudaginn skrópaði ég í skólannum og fór að
versla með vinum mínum. Eftir það fór ég heim borðaði hádegis mat.
Svo um 3 leitið fór ég aftur í skólann því að skólinn minn var að
fara á óperu í Sassari æðislega flott alltsaman en ég skildi
ekki baun í bala, annars hitti ég vin min Istvan frá ungverjalandi
í Sassari, hann býr þar það var æðislega gaman að hitta hann

Á þriðjudagin ætlaði ég að fara í skólann en það var
enginir úr bekknum mínum mættir nema einn strákur
Andrea.
Hann sagði mér bara að fara heim og sofa svo ég
gerði það.
Svo ég svaf og fór seinni partinn í
Ítölskutíma.
Á fimmtudaginn var ég mjög lengi í skólanum því að
ég var að mála málverkið mitt svo fór ég með Gimmy að
Duomo.
Þegar ég var búin að vera þar í smá tíma hringdi
Daniela í mig og bað mig um að koma heim. Ég gerði það en þegar ég
var lögð að stað sá ég að það var RISA STÓR rifa í nýja
leðurjakkann minn ég varð brjáluð búin að eiga hann í tvær vikur
allavegna fór í búðina og bað um að fá að skila honum. En það
var eitthvað mál og bla bla bla....
Svo gerðist ekkert mikið meira í þessari
viku.
»
01.12.2006 14:52:48 / hrundpund
Jólagjafalisti fyrir
Ísland.
Jæja ég verð víst að segja family-unni heima hvað
mig langar í jólagjöf svo að ég geri bara lista. Það eru samt tveir
hlutir sem ég væri mjög ánægð ef allir sem gefa mér jólagjöf myndu
gera.
Nr.1 Senda mér myndir af ykkur heima bæði vinir og
ættingjar, af ykkur að gera eitthvað sem þið hafið gert á meðan ég
er búin að vera í burt. t.d. Ma og Pa geta sent mér myndir af þeim
á Kúbu eða Slóveníu eða hvar sem þau voru.
Nr.2 Senda mér bréf sem inniheldur hvað þið eruð
búin að vera gera síðustu 3 mánuði og hvaða merkilegu hlutir eru
búnir að gerast á Íslandi í fjarveru
minni.
Annars hérna kemur jólagjafa listinn

Svarta venjulega húfu og vetlinga (kannski Mamma
hafi það bara sem jólagjöfina mína frá ömmu
Gyðu),
Ice in a bucket eyrnalokka eða „Aukahluti“ frá Ice
in a bucket.
Íslenst nammi og
suðusúkkulaði.
Bók á ensku eða Íslensku(ég er búin að lesa Harry
Potter 6 nokkuð oft og er að fá leið á henni
)
DVD einhverja skemmtilega mynd eða
horror.
Knús í bréfi 
Eitthvað lítið og sætt sem er ekki þungt og ekki
dýrt að senda 
»
18.11.2006 16:09:25 / hrundpund
»
11.11.2006 17:13:50 / hrundpund
Well a new blogg
now I'm going to be writing in English because some of my AFS
friends want to read what I 'm doing so I have every thing in
English 
Write some more later bye!!
»
03.11.2006 15:56:30 / hrundpund
»
28.10.2006 15:50:57 / hrundpund
jaeja gott fòlk enn ein faerslan og nù vill èg fà comment frà
ollum sem skoda sìduna, sama tòtt tid tekkid mig eda ekki!!!
Og tid sem eigid ad heita vinir mìnir tarna à ìslandi, commentid
svo ad èg viti ad tid fylgist med tad er òskop leidinlegt
ad hugsa til tess ad madur à vini heima à ìslandi og teir hafa
ekkert samband en alla vegnana laet èg lìka inn myndir à sìduna
mìna svo njòtid vel 
ciao ciao
»
Síður: 1 2 3 4
|
�?¨g kem heim
Fyrir 1692 dögum
|